Það er búið að staðfesta endurkomu Ashley Young til Aston Villa eins og beðið hefur verið eftir.
Young kemur til Villa frá Inter Milan á Ítalíu en þar hefur hann spilað undanfarið ár.
Young var orðaður við tvö fyrrum félög bæði uppeldisfélagið Watford og svo Villa.
Bakvörðurinn spilaði með Villa frá 2007 til 2011 áður en hann samdi við Manchester United.
Englendingurinn lék með Man Utd frá 2011 til 2020 og á að baki 39 landsleiki fyrir þjóð sína.
I'M BACK 💙💜 pic.twitter.com/hBJJUnFXGp
— Ashley Young (@youngy18) June 17, 2021
Athugasemdir