Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 17. júní 2022 14:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bissouma genginn til liðs við Tottenham (Staðfest)
Mynd: Tottenham Hotspur

Tottenham hefur gengið frá þriðju félagsskiptunum sínum í sumar en Yves Bissouma er genginn til liðs við félagið frá Brighton. Kaupverðið er talið vera 25 milljónir punda plús 10 milljónir árangurstengdar greiðslur.


Bissouma gerir fjögurra ára samning við félagið.

Hann gekk til liðs við Brighton frá Lille í Frakklandi árið 2018 og hefur leikið 123 leiki og skorað sex mörk. Brighton hafnaði í 9. sæti á síðsutu leiktíð sem er besti árangur félagsins í sögunni.

Eins og fyrr segir er Bissouma þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Lundúnarliðið í sumar. Áður komu þeir Ivan Perisic frá Inter og Fraser Forster frá Southampton, báðir á frjálsri sölu.


Athugasemdir
banner
banner
banner