Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 17. júní 2022 16:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mane var með of miklar kröfur
Mynd: EPA

Sadio Mane er við það að ganga til liðs við Bayern Munchen frá Liverpool en enska liðið er búið að samþykkja tilboð þess þýska en verðmiðinn getur farið upp í allt að 35 milljónir punda.


Mane gekk til liðs við Liverpool frá Southampton árið 2016 en samningur hans við félagið hefði runnið út næsta sumar.

Stjórn Liverpool var ekki tilbúið að bjóða honum nýjan samning þar sem hann setti kröfur á að verða launahæsti leikmaður liðsins.

Talið er að hann fái 250 þúsund pund á viku hjá Bayern.


Athugasemdir
banner
banner
banner