Hinn tvítugi Gavin Bazunu er genginn til liðs við Southampton frá Manchester City. Hann gerir fimm ára samning við félagið.
Bazunu gekk til liðs við City þegar hann var 16 ára gamall en hann var á láni hjá Rochdale tímabilið 2020/21 og var valinn leikmaður ársins hjá Portsmouth þar sem hann var á láni á síðustu leiktíð.
Hann er yngsti markvörður í sögu írska landsliðsins en hann hefur þegar leikið 10 landsleiki.
Hann kemur til liðsins í stað Fraser Forster sem yfirgefur félagið þegar samningur hans rennur út en hann hefur þegar gert samning við Tottenham.
Athugasemdir