Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 17. júlí 2021 17:41
Victor Pálsson
Bale kemur ekki aftur
Mynd: EPA
Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, mun ekki spila með Tottenham á næstu leiktíð líkt og þeirri síðustu.

Þetta hefur Nuno Espirito Santo, þjálfari liðsins, staðfest en hann tók nýlega við liðinu.

„Hann verður ekki hluti af okkar hóp," sagði Nuno en Bale stóð sig ágætlega hjá sínu gamla félagi í vetur.

Bale gæti því reynt að vinna sér inn sæti í hóp Real Madrid en þar mun hann vinna með Carlo Ancelotti.

Meiðsli hafa sett stórt strik í reikning Bale síðustu ár en hann gæti náð flugi ef þau tilheyra sögunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner