Fotbolti.net
06.08.26 - 10:30
Innkastið
Steypustöðin

Sterkastur í 17. umferð - Geggjaður eftir gagnrýni frá þjálfaranum

Jökull varði eins og berserkur gegn KR.

Jökull varði eins og berserkur gegn KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jökull Andrésson markvörður FH átti stórkostlegan leik þegar FH náði ótrúlegu 1-1 jafntefli gegn KR í 17. umferð Bestu deildarinnar. Hann átti alls ellefu markvörslur en KR var með 3,44 í xG tölfræðinni góðu yfir vænt mörk.

Jökull var í yfirvinnu allan leikinn en varði eins og berserkur og er leikmaður umferðarinnar í boði Steypustöðvarinnar.
Sterkasta lið 17. umferðar - Freyr bestur á Þjóðhátíð
TENGT EFNI

Sterkasta lið 17. umferðar - Freyr bestur á Þjóðhátíð

Lestu um leikinn: FH 1 - 1 KR
„Hann hefur ekki bara verið besti markvörður deildarinnar að undanförnu heldur einnig einn besti leikmaðurinn," segir Elvar Geir í Innkastinu.

Síðan í byrjun júlí hefur Jökull þrisvar sinum verið valinn í lið umferðarinnar, eftir að Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gagnrýndi hann opinberlega eftir jafntefli gegn ÍBV. Ummæli sem voru umdeild. Jökull tók gagnrýnina á kassann og hefur verið í frábærum ham milli stanganna hjá FH.

„Það eru öflugir karakterar í þessum hóp og þetta eru bara fullorðnir karlmenn sem geta höndlað það hvort sem það sé ég sem að segi eitthvað eða einhverjir aðrir. Sterkir, öflugir, samheldnir og það er það sem að skiptir mestu máli," sagði Jói Kalli, þjálfari FH, í viðtali í byrjun júlí.

Sterkustu leikmenn:
16. umferð - Arnór Ingvi Traustason (KR)
15. umferð - Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
14. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
13. umferð - Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Sterkastur í 17. umferð - Geggjaður eftir gagnrýni frá þjálfaranum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Norður-kóreskir tilburðir á Akureyri

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.21+4652
2KR21+2744
3Fram21+1444
4Breiðablik21+330
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Stjarnan21-827
8Valur21-724
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.