Fotbolti.net
17.08.16 - 21:41
Jóhann Ingi Hafþórsson

Rebekah Bass: Ég elska Vestmannaeyjar

Auglýsing
Rebekah Bass í leik með ÍBV.

Rebekah Bass í leik með ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
Rebekah Bass, leikmaður ÍBV var mjög kát eftir 2-1 sigur á Val í kvöld.

Hún skoraði fyrra mark liðsins í ansi góðum sigri. Hún var sérstaklega ánægð með baráttu ÍBV-liðsins í kvöld.
„Við börðumst allar áfram sem lið, ef það er eitthvað við þetta félag þá er það að hvort sem við vinnum eða töpum, berjumst við saman sem lið. Við vissum að það væri mikið eftir þó við vorum 1-0 yfir\"

„Þegar það kemur rautt spjald getur tvennt gerst, liðið getur misst hausinn og gengið illa eða tekið sig til og haldið áfram og við gerðum það sem lið.\"

Eins og áður segir, skoraði hún fyrra mark ÍBV en hún átti erfitt með að rifja upp markið.

„Ég man hreinlega ekki hvað gerðist, ég var að segja við liðsfélaga mína að ég setti löppina mína út og það endaði inni en ég ætti að segja þér að ég ætlaði að gera nákvæmnlega þetta.\"

Hún talaði svo um að bikarúrslitahelgin hafi verið vonbrigði þó það hafi vissulega verið gaman að komast í úrslitaleikinn.

„Síðasta helgi var súrsæt, við komumst þangað og þetta var frábær dagur en það var erfitt að taka tapinu en við tókum okkur saman og sögðum að deildin væri aðalmálið núna.\"

Hún kann ansi mikið að meta Vestmannaeyjar.

„Þetta er búið að vera frábært, ég kem frá Leeds, og það er öðruvísi að lifa á eyjunni en ég elska eyjuna og ég elska félagið.\"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.