17.08.26 - 14:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Auðvitað geta þeir verið saman inn á"

Kristófer Ingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorleifur Úlfars.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristófer Ingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorleifur Úlfarsson og Kristófer Ingi Kristinsson spiluðu saman í framlínu Breiðabliks í gær. Kristófer Ingi er að koma til baka eftir meiðsli og Þorleifur var að byrja sinn fyrsta leik eftir að hafa verið keyptur frá Bandaríkjunum.
Kristófer skoraði tvö af þremur mörkum Breiðabliks í leiknum og fengu þeir báðir sénsa til að bæta við mörkum.
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, ræddi um Þorleif (Dolla) og Kristófer Inga (Kristó) í viðtali eftir leikinn í gær.

Lestu um leikinn: KR 3 - 3 Breiðablik
„Mér fannst hann frábær, fannst hann og Kristó vera ótrúlega flottir, tengdu vel saman. Það vantaði bara upp á það síðasta hjá Dolla sem ég veit að kemur, vegna þess að hann er frábær slúttari. Mér fannst hann standa sig frábærlega í dag, góður í pressunni og góður í uppspilinu."
„Við erum með þessa tvo mjög flottu leikmenn, auðvitað geta þeir verið saman inn á og við getum líka notað (einungis) annan (þeirra). Það fer pínu eftir upplegginu. Krístó var frábær í kvöld, hefði mögulega átt að fara héðan með þrennu. Auðvitað er hann leikmaður sem við höfum saknað undanfarnar vikur. Hann er að koma aftur sem er fagnaðarefni fyrir okkur," segir þjálfarinn.
Kristófer hefur skorað 11 mörk í 13 leikjum í Bestu deildinni í sumar og lagt upp þrjú. Hann hefur þá skorað þrjú mörk í fjórum bikarleikjum. Þorleifur fiskaði víti í gær og átti sex skottilraunir úr vítateig KR.