Fotbolti.net
17.08.26 - 23:59
Ívan Guðjón Baldursson

Boehly í viðræðum um að selja hlut sinn í Chelsea

Boehly í viðræðum um að selja hlut sinn í Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Todd Boehly og Mark Walter eru í viðræðum um að selja hluti sína í Chelsea til meirihlutaeigendanna í Clearlake Capital.
Boehly og Walter eiga samanlagt rúmlega 25% hlut í Chelsea og var Boehly andlit fjárfestahópsins sem keypti félagið á sínum tíma, auk þess að hafa starfað sem forseti félagsins síðustu ár.

Fjárfestarnir keyptu Chelsea fyrir fjórum árum síðan og kostaði stórveldið 2,5 milljarði punda. Enskir fjölmiðlar segja að Clearlake Capital sé reiðubúið til að kaupa Boehly og Walter út og gætu þeir fallist á að selja hluti sína eftir ýmsa ágreininga sem hafa komið upp á milli eigendanna að undanförnu.

Talið er að Clearlake Capital sé tilbúið að borga eigendunum tvöfalt hærri upphæð en hlutur þeirra í Chelsea var upprunalega. Þeir gætu því hagnast um 100 til 200 milljónir punda hvor.

Eins og staðan er í dag á Clearlake Capital 61,6% í Chelsea á meðan Boehly og Walter eiga 12,8% á haus.

Hansjörg Wyss á síðasta 12,8% hlutinn í félaginu en ekki er greint frá því hvort hann sé að íhuga að selja.
Boehly í viðræðum um að selja hlut sinn í Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.