17.08.26 - 23:23
Ívan Guðjón Baldursson
Brighton hafnaði tilboði frá Rangers

Mynd: EPA

Mynd: Arsenal

Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hafnaði 7,5 milljón punda tilboði frá skoska stórveldinu Rangers fyrir kantmanninn efnilega Amario Cozier-Duberry.

TENGT EFNI
Gæti farið þrátt fyrir nýtt samningstilboð frá Brighton
Cozier-Duberry er 21 árs gamall og þótti gríðarlega mikið efni þegar hann kom upp í gegnum uppeldisstarfið hjá Arsenal. Hann kaus að skipta yfir til Brighton þegar samningur hans rann út fyrir tveimur árum, en hefur ekki enn fengið tækifæri með aðalliðinu.
Hann gerði flotta hluti á láni hjá Bolton á síðustu leiktíð, þar sem hann kom með beinum hætti að 23 mörkum í 41 leik og hjálpaði liðinu að tryggja sér sæti í Championship deildinni.
Ýmis félög úr Championship hafa áhuga á Cozier-Duberry og er einnig áhugi á honum frá Þýskalandi og Frakklandi.
Brighton bauð kantmanninum nýjan samning í maí en hann skrfaði ekki undir. Hann er í leit að meiri spiltíma heldur en er í boði á Falmer leikvanginum.