Fotbolti.net
17.08.26 - 13:57
Kári Snorrason

Eiður Smári álitsgjafi Sýnar í enska boltanum

Fékk mikið lof fyrir störf sín á Rúv í sumar.

Fékk mikið lof fyrir störf sín á Rúv í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári Guðjohnsen verður meðal álitsgjafa hjá Sýn Sport fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni.

Eiður fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína sem álitsgjafi í kringum heimsmeistaramótið á Rúv í sumar. Í könnun Fótbolta.net um besta álitsgjafa RÚV á HM hlaut Eiður 47 prósent atkvæða.
Eiður Smári hlaut yfirburðakosningu
TENGT EFNI

Eiður Smári hlaut yfirburðakosningu

Hann starfaði sem álitsgjafi um enska boltann á Símanum en rétturinn á ensku úrvalsdeildunni fór yfir til Sýn fyrir á síðasta ári.

Einhverjir hafa kallað eftir Eiði í þjálfarastörf en hann hefur ekki verið í þjálfun síðan hann var með FH árið 2022.

Hann var fyrst aðalþjálfari hjá FH 2020 og gerði mjög góða hluti, var aðstoðarmaður Arnars Þórs Viðarssonar með U21 landsliðið og aðstoðaði hann svo með A-landsliðið.

Í Víkinni í góðum félagsskap.

Í Víkinni í góðum félagsskap.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.