Skoraði magnað mark í Eyjum - „Síðan bara tók ég á rás, held ég hafi sólað þrjá og setti hann í þaknetið"

Reyni alltaf að bæta mig leik eftir leik og skoða hvað ég gerði vel og hvað ég gat gert betur í leikjunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnst ég eiga meira inni og alltaf geta gert betur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Gísli átti sendinguna á Hauk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jájá, þetta kom held ég ansi mörgum á óvart.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég mun láta hann fá mataræðið mitt, þá kemur þetta vonandi ekki fyrir aftur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Komin meiri samheldni í liðið og erum að vinna sem ein heild

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er helvíti erfitt að eiga við okkur þegar allir eru með kveikt á sér

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV fékk fullt af góðum stöðum og fín færi en við stóðum það af okkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reyni alltaf að bæta mig leik eftir leik og skoða hvað ég gerði vel og hvað ég gat gert betur í leikjunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net ræddi við miðjumanninn um leikinn í gær.
Kom held ég ansi mörgum á óvart
Haukur skoraði fyrsta markið og var það af dýrari gerðinni. Hann fékk boltann frá Jóni Gísla Eyland og spændi sig í gegnum vörn Eyjamanna og skoraði svo með föstu skoti af stuttu færi. Markið fer ofarlega á lista hjá Hauki yfir besta mark ferilsins.
„Ég fékk hann milli línanna frá Johnny og næ að snúa. Síðan bara tók ég á rás, held ég hafi sólað þrjá og setti hann í þaknetið. Það er annað hvort þetta mark eða markið gegn FH í Kaplakrika í fyrra sem er það besta." Markið gegn FH skoraði hann eftir hraða skyndisókn eftir hornspyrnu FH-inga.
Kom þér á óvart að komast alla leið í skotið.
„Jájá, þetta kom held ég ansi mörgum á óvart."
Á góðri leið með að enda í efri hlutanumHaukur Andri Haraldsson! ???????????? #bestadeildin pic.twitter.com/uYbHgBR8aP
— Besta deildin (@bestadeildin) August 16, 2026
Hvaða þýðingu hefur þessi sigur?
„Sigurinn þýðir það að við erum að góðri leið á að enda í efri hlutanum og erum að fjarlægast neðri sætin. Ef við höldum þessu skriði áfram þá munu góðir hlutir fylgja eftir í kjölfarið."
Spilastokkurinn bjargaði málunum
Hvernig var ferðalagið?
„Ferðalagið var alveg langt. Æfðum í hádeginu á laugardeginum á Akranesi, lögðum af stað klukkan tvö til Eyja og fórum með bátnum klukkan fimm. Sunnudagurinn var skrítinn í ljósi þess að leikurinn var svo seint þannig það var mikið hangs um daginn, hefði verið þægilegra ef leikurinn hefði verið fyrr en maður ræður ekki öllu. Spilastokkurinn var algjör MVP í þessu hangsi."
Meiri samheldni
ÍA er á góðu skriði um þessar mundir. Liðið hefur tekið tíu stig úr síðustu fjórum leikjum sínum eftir fimm leikja taphrinu. Hvað hefur breyst og hvernig lítur framhaldið við þér?
„Breytingin er sú að við erum búnir að spila meira saman og þekkjum hvorn annan betur, komin meiri samheldni í liðið og erum að vinna sem ein heild. Allir að hlaupa úr sér lungun fyrir næsta mann. Framhaldið leggst vel í mig ef spilamennskan heldur svona áfram. Það er helvíti erfitt að eiga við okkur þegar allir eru með kveikt á sér."
Setur miklar kröfur á sjálfan sig
Haukur hefur spilað alla leiki í sumar nema einn og byrjað alla leikina sem hann hefur spilað. Hann hefur spilað á tveggja og þriggja manna miðju og var markið hans í gær annað markið í deildinni á tímabilinu. Hann hefur auk þess lagt upp þrjú mörk. Hvernig metur þú þitt eigið tímabil?
„Ég met það bara fínt. Finnst ég eiga meira inni og alltaf geta gert betur, ég geri alltaf miklar kröfur á mig og aðrir í liðinu búast líka við miklu frá mér sem er alltaf gott. Reyni alltaf að bæta mig leik eftir leik og skoða hvað ég gerði vel og hvað ég gat gert betur í leikjunum."
Ekki boðlegt að fá krampa eftir 70
Viktor Jónsson greip um kálfann eftir að hann skoraði þriðja markið og fór með því langt með að innsigla sigurinn. Undirritaður hélt að hann hefði að fagna með því að þykjast vera meiddur. Haukur segir hins vegar að framherjinn hefði fengið krampa.
„Viktor fékk krampa í kálfann þegar hann tók af stað í gegn. Hann sýndi bara að hann er „mentality monster" (i. býr yfir gríðarlegri seiglu). Hins vegar er ekki boðlegt að hann sé að fá krampa eftir sjötíu mínútur. Ég mun láta hann fá mataræðið mitt, þá kemur þetta vonandi ekki fyrir aftur," segir Haukur Andri sem hélt að Viktor hefði meiðst illa í þessu atviki.
Næsti leikur ÍA er heimaleikur gegn FH næsta sunnudag.

Finnst ég eiga meira inni og alltaf geta gert betur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Gísli átti sendinguna á Hauk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jájá, þetta kom held ég ansi mörgum á óvart.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég mun láta hann fá mataræðið mitt, þá kemur þetta vonandi ekki fyrir aftur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Komin meiri samheldni í liðið og erum að vinna sem ein heild

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er helvíti erfitt að eiga við okkur þegar allir eru með kveikt á sér

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV fékk fullt af góðum stöðum og fín færi en við stóðum það af okkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
