Fotbolti.net
17.08.26 - 12:35
Kári Snorrason

Vatnhamar ræðir skrefið til Vejle - „Nýr kafli í mínu lífi“

Á förum frá Víkingi.

Á förum frá Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar er á förum frá Víkingi og er á leið til danska B-deildar félagsins Vejle.

Færeyski landsliðsmaðurinn er og hefur verið lykilmaður í liði Víkings frá komu sinni frá uppeldisfélaginu Víkingi Götu í Færeyjum fyrir tímabilið 2023.

Sölvi Geir Ottesen sagði í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að Gunnar myndi líklega fara eftir leikinn gegn KR þann 30. ágúst.

Fótbolti.net ræddi við Gunnar um skrefið frá Víkingi eftir 4-2 sigur liðsins á FH í gær. Gunnar skoraði þriðja mark liðsins.
Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi
TENGT EFNI

Gunnar Vatnhamar á förum frá Víkingi

„Það er með trega í hjarta sem ég kveð Víking. Þetta er frábær staður til að vera á. Þetta er nýr kafli í mínu lífi. Mig langar til þess að prufa eitthvað nýtt. Ég er mjög ánægður hérna og ég ætla að njóta hverrar stundar sem er eftir hérna,“ sagði Gunnar eftir leik og játaði að ákvörðunin hefði verið mjög erfið.

„Þetta er mjög erfið ákvörðun. Víkingur er stór hluti af mínu lífi. Þetta er ákvörðun sem að ég tók og ég stend við hana. Ég held að þetta sé gott skref. En auðvitað er þetta erfið ákvörðun og mér finnst leiðinlegt að þurfa að kveðja. Svona er lífið. Ég er bara spenntur fyrir næsta leik.“

Er möguleiki að þú snúir einn daginn aftur í Víking?
„Maður veit aldrei í fótbolta. Ég ætla reyna njóta í þessum síðustu leikjum. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Ef þeir vilja mig er ég alltaf klár,“ sagði Gunnar léttur að lokum.
Fagnar marki sínu í gær.

Fagnar marki sínu í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar og Oliver Ekroth hafa myndað frábært miðvarðarpar í vörn Víkings.

Gunnar og Oliver Ekroth hafa myndað frábært miðvarðarpar í vörn Víkings.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Vatnhamar: Frábær stoðsending og ég þurfti bara að pota boltanum inn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.