Fotbolti.net
17.08.26 - 22:20
Andri Stefánsson

Rúnar Kristins: Sammála því sem Óskar sagði í gær

Auglýsing
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram fékk Stjörnuna í heimsókn í 19. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Fram unnu sterkan 3-1 sigur og jöfnuðu KR að stigum. Fótbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, eftir sigurinn.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 1 Stjarnan
„Það er mikil ánægja að landa þremur stigum. Við vorum í erfiðleikum framan af og lentum 1-0 undir. Við hefðum samt getað komið okkur í betri stöður og átt fín færi. Mér fannst við síðan ná betri tökum á leiknum, jafna og það var mjög ánægjulegt að Robbi skyldi skora annað markið. Við komum okkur í 2-1 og fórum með þá stöðu inn í hálfleikinn. Þar náðum við að laga ýmislegt fyrir seinni hálfleikinn og stjórna betur því sem við vildum stjórna. Stjarnan komst ekki í eins góðar stöður,“ sagði Rúnar eftir leik.

Þá var Rúnar spurður hvað honum hefði fundist ráða úrslitum í kvöld.

„Við vörðumst betur í seinni hálfleik og lokuðum betur á uppspilið þeirra. Þeir komust í alltof margar góðar stöður í fyrri hálfleik og við vorum mikið að hlaupa á eftir þeim, sem þreytti okkur. Í seinni hálfleik var varnarleikurinn betri. Síðan kom þriðja markið eftir frábæra skyndisókn og eftir það fannst mér sigurinn aldrei vera í mikilli hættu, þó maður sé aldrei alveg rólegur þegar maður leiðir með tveimur mörkum.“

Róbert kom inn í byrjunarliðið og þakkaði traustið með tveimur mörkum.

„Róbert var frábær og við höfum verið að bíða eftir þessu. Hann hefur verið óheppinn með færin sín en í dag skoraði hann tvö mjög góð mörk og ég er virkilega ánægður fyrir hans hönd. Hann færir okkur óborganlega mikið. Það hefur verið mikil samkeppni um stöðurnar. Vuk, Atli, Róbert og Jakob hafa allir verið að berjast um mínútur þarna uppi. Hann hefur þurft að þrjóskast við sem er alltaf best þegar maður fær ekki að spila alla leiki. Nú skoraði hann tvö mörk í sama leik í fyrsta skipti fyrir okkur í sumar og gerði það frábærlega. Hann var flottur í leiknum, hljóp vel og varðist vel. Hann og Vuk voru ógnandi allan tímann.“

Þá var Rúnar spurður hvernig það hefði verið að koma aftur á hliðarlínuna.

„Það er geggjað að vera á hliðarlínunni. Ég segi ekki að það sé rólegra en það er alltaf betra en að sitja uppi í stúku. Ég er mjög sáttur við að hafa fengið að vera á hliðarlínunni í kvöld.“

Rúnar var þá spurður út í stöðuna á Símoni Tibbling.

„Hann fékk heilahristing í Vestmannaeyjum og er í meðhöndlun hjá læknum og sjúkraþjálfurum. Hann verður sennilega ekki klár í næstu viku en við vonumst til þess að hann verði klár eftir tvær vikur.“

Rúnar var einnig spurður út í önnur meiðsli í hópnum en Fred fór meiddur af velli í leiknum.

„Við þurfum að sjá hversu alvarlegt það er. Aðrir eru í fínu lagi. Atli Jónasson er frá og verður sennilega lítið, ef eitthvað, meira með á þessu tímabili. Það er slæmt fyrir okkur og ekki skemmtilegt.“

Spurður hvort meiðsli Freds gætu verið alvarleg sagði Rúnar:

„Það er hugsanlegt að þetta sé tognun. Við vitum það ekki enn en ætlum að skoða það betur og vonandi ná myndatöku á morgun . Þá fáum við staðfestingu á því.“

Að lokum var Rúnar spurður hvort raunhæft væri að stefna á Íslandsmeistaratitilinn.

„Ég er sammála því sem Óskar sagði í gær. Víkingar eru í einhverri annarri deild. Með þann mannskap sem þeir eru með og hvernig liðið er að spila þarf eitthvað að gerast hjá þeim. Við gefumst þó ekki upp. Við ætlum að ná í eins mörg stig og við getum, halda áfram að standa okkur fyrir félagið og berjast um efstu sætin, hvað sem það gefur okkur.

Við ætlum að berjast um Evrópusæti. Við þurfum að halda okkur í efstu þremur til að eiga möguleika á Evrópukeppni og það er eitthvað sem okkur langar að láta verða að veruleika. Það er mikið eftir, nóg af stigum í boði og margir erfiðir leikir fram undan. Við eigum tvo leiki eftir gegn Víkingi og tvo gegn Breiðabliki. Síðan verður áhugavert að sjá hvernig efri hlutinn raðast upp. Við þurfum að halda haus, gera réttu hlutina, æfa vel og mæta eins vel undirbúnir og við getum í hvern leik.“
Fred fór meiddur af velli og gæti verið tognaður.

Fred fór meiddur af velli og gæti verið tognaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn: Aleinir út á rúmsjó ekki með björgunarvesti eða björgunarbát

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.