Fotbolti.net
17.08.26 - 23:09
Helgi Inguson

„Okkar helsta markmið er að vinna bardagann gegn okkur sjálfum"

Auglýsing
Chris Brazzell, þjáfari Vals

Chris Brazzell, þjáfari Vals

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mér líður eins og ég hafi elst um 20 ár við að horfa á leikinn, sagði Chris Brazzell, þjálfari Vals, eftir vægast sagt fjörugan leik á Hlíðarenda gegn KA í 19. umferð Bestu deildar karla.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 4 KA
„Leikurinn var mjög skemmtilegur, jafnvel of skemmtilegur frá mínu sjónarhorni. Ég er mjög ánægður með karakterinn sem strákarnir sýndu. Við þurfum að samþykkja það að við spiluðum skelfilegan fyrri hálfleik að mörgu leiti, sérstaklega varnarlega. Ég er ánægður með karakterinn í strákunum að hafa náð að koma til baka," sagði Brazzell.

„Hrós á KA, staða þeirra í deildinni er eins og hún er en þeir eru með marga gæða leikmenn. Þeir komu hingað, spiluðu af krafti og sýndu að þeir eru lið. Í fyrri hálfleik vorum við ekki í takti, og ég hreinlega veit ekki hvers vegna, þarf aðeins að hugsa það. Það sem skiptir þá máli er hvernig menn svara og það sem strákarnir sýndu í seinni hálfleik var frábært svar."

Valur er í 7. sæti deildarinnar með 23 stig, tveimur stigum á eftir ÍA og Keflavík sem eru í efri hlutanum. Hvert er markmið Vals þegar styttast fer í tvískiptingu?

„Okkar helsta markmið er að vinna bardagann gegn okkur sjálfum, sama hversu kjánalega það hljómar. Það sem ég sá í kvöld, hvað viðhorf og kraft okkar varðar, er það sem skiptir mig mestu máli. Ég hef ekki sett stákunum mörg markmið þegar það kemur að stöðutöflunni. Ég þekki deildina og veit hversu klikkuð hún getur verið, sérstaklega á þessum tímapunkti ársins. Við þurfum að vera nægilega metnaðarfullir til þess að horfa upp fyrir okkur en á sama tíma nægilega auðmjúkir til þess að gera sér grein fyrir því að liðin á eftir okkur er vilja ná okkur," sagði Chris Brazzell að lokum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.