17.09.16 - 17:10
Hafliði Breiðfjörð
Hörður Sveinsson: Verðum að klára 3. sæti á laugardag
Auglýsing

Hörður skorar framhjá Sandor Matus í fyrri leik liðanna.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

<em>„Við duttum svolítið aftarlega og héldum ekki áfram að skapa okkur. Þeir keyrðu sig inn í þetta og því fór sem fór," </em>sagði Hörður Sveinsson framherji Keflavíkur eftir 2-2 jafntefli við Þór í dag en hann hafði sjálfur komið sínum mönnum í 2-0 áður en þeir misstu forystuna niður.<br />
„Við spiluðum mjög vel í fyrri hálfleik og hefðum getað verið búnir að skora fleiri mörk en svo gáfum við eftir og þeir gengu á lagið."
Hörður skoraði sem fyrr sagði tvö mörk fyrir Keflavík í fyrri hálfleiknum.
„Það er alltaf gaman að skora," sagði hann. „Ég tek því sáttur en ef við hefðum getað klárað 3. sætið í dag. Við verðum þá bara að klára það á næsta laugardag."
„Markmiðið var að fara upp og það er fyrir löngu farið frá okkur En við verðum bara að klára eins ofarlega og við getum og byrja svo að byggja upp fyrir næsta tímabil."
Nánar er rætt við Hörð í sjónvarpinu hér að ofan.