Fotbolti.net
17.09.17 - 21:04
Þórarinn Jónas Ásgeirsson

Valur Íslandsmeistari 2017 (Staðfest)

Íslandsmeistarar.

Íslandsmeistarar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur 4 - 1 Fjölnir
1-0 Guðjón Pétur Lýðsson (\'4 )
2-0 Bjarni Ólafur Eiríksson (\'45 )
3-0 Sigurður Egill Lárusson (\'49 )
4-0 Einar Karl Ingvarsson (\'82 )
4-1 Marcus Solberg Mathiasen (\'86 )
Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitil karla í kvöld með öruggum 4-1 sigri á Fjölni á Valsvellinum. Þetta er Íslandsmeistaratitill númer 21 hjá Hlíðarendapiltum en þeir unnu titilinn síðast árið 2007.

Það var ljóst frá fyrstu mínútu að Valsmenn ætluðu sér að tryggja titilinn í kvöld og kom Guðjón Pétur Lýðsson þeim yfir eftir fjögurra mínútna leik með flottu marki.

Bjarni Ólafur Eiríksson tvöfaldaði forystu Valsmann með skalla eftir hornspyrnu alveg undir lok fyrri hálfleiks og fóru því Valsmenn með tveggja marka forystu þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Sigurður Egill Lárusson bætti svo við þriðja markinu í upphafi síðari hálfleiks og það var síðan Einar Karl Ingvarsson sem kórónaði frábæran leik Valsmanna þegar hann skoraði fjórða mark Vals eftir frábæran undirbúning Andra Adolfssonar þegar átta mínútur voru eftir af leiknum.

Marcus Solberg skoraði síðan sárabótamark fyrir Fjölnismenn eftir darraða dans í teig Valsmanna áður en Ívar Orri flautaði til leiksloka.

Öruggur sigur Valsmanna staðreynd og verðskuldaður Íslandsmeistaratitill í höfn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.