Lið vikunnar í enska - Fjórir úr Liverpool og þrír úr Man Utd

Markvörður: David de Gea (Man Utd) - Tók mjög mikilvægar markvörslur og kom í veg fyrir að Watford næði í óverðskuldað stig.

Mynd: Getty Images

Vörn: Chris Smalling (Man Utd) - Frumsýndi nýja hárgreiðslu, varðist vel og skoraði!

Mynd: Getty Images

Vörn: Joe Gomez (Liverpool) - Verður sífellt betri og gæti náð í hæstu hæðir. Átti öflugar tæklingar í sigrinum gegn Tottenham.

Mynd: Getty Images

Vörn: Virgil van Dijk (Liverpool) - Var með Harry Kane í vasanum.

Mynd: Getty Images

Miðja: Marouane Fellaini (Man Utd) - Var hreinlega magnaður gegn Watford og virtist lausnin á öllum vandamálum United!

Mynd: Getty Images

Miðja: James Milner (Liverpool) - Hefur gríðarlegan leikskilning og það hefur hjálpað Liverpool.

Mynd: Getty Images

Miðja: Eden Hazard (Chelsea) - Er að toppa sjálfan sig um þessar mundir. Þrenna gegn Cardiff.

Mynd: Getty Images

Miðja: Ryan Fraser (Bournemout) - Tvö mörk og stoðsending í 4-2 sigri gegn Leicester. Fær þó mínus fyrir ljóta dýfu!

Mynd: Getty Images

Sókn: Wilfried Zaha (Crystal Palace) - Sigurmark gegn Huddersfield. Er einhver leikmaður mikilvægari fyrir sitt lið?

Mynd: Getty Images

Sókn: Marko Arnautovic (West Ham) - Hamrarnir fundu loks taktinn, unnu 3-1 útisigur gegn Everton þar sem Arnautovic og Andriy Yarmolenko voru baneitraðir.

Mynd: Getty Images

Sókn: Roberto Firmino (Liverpool) - Stútfullur af hæfileikum og ótrúlega duglegur. Skoraði sigurmarkið gegn Spurs.

Mynd: Getty Images






