City, Liverpool, Arsenal, RB Leipzig, Dortmund og Barcelona fylgjast með Hall - Man City gæti fengið Porro frá Spurs á afsláttarverði
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   fim 17. september 2020 19:10
Anton Freyr Jónsson
Hjörtur Logi: Sá boltann koma perfect fyrir mig og ákvað að smella þessu
Hjörtur Logi Valgarðsson var hetja FH í dag
Hjörtur Logi Valgarðsson var hetja FH í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var erfiður leikur. Mér fannst við ekki byrja neitt sérstaklega vel. Þetta var mikil barátta en við vorum þéttir og vorum ekki að gefa mörg færi á okkur sem er kannski gott. Við kannski náðum ekki alveg sama krafti og í síðasta leiki en bara gríðarlega sætt að ná að klára þetta, maður var smá stressaður þarna í lokin en frábært að klára." voru fyrstu viðbrögð Hjörts Loga Valgarðssonar leikmanns FH eftir sigurinn á Víkingum í dag.

Lestu um leikinn: FH 1 -  0 Víkingur R.

Pétur Viðarsson meiddist í upphitun og Hjörtur Logi Valgarðsson kom óvænt inn í liðið og þakkaði fyrir það með sigurmarki leiksins, hvað hugsaði Hjörtur þegar hann fékk boltann inn á teig frá Herði Inga.

„Ég eiginlega bara hugsaði mest lítið, ég sá bara boltann koma þarna perfect fyrir mig og ákvað að smella þessu."

FH-ingar eru komnir upp í annað sæti eftir sigurinn í dag og hafa verið á góðu skriði undanfarið. Hvernig horfir framhaldið í deildinni við Hirti Loga?

„Við erum komnir á smá skrið núna og við ætlum að reyna halda því uppi, við höfum verið að spila vel undanfarið en aðsjálfsögðu er Valur fyrir ofan okkur en við verðum bara að focusera á að klára okkar leiki og sjá hvað gerist."
Athugasemdir
banner
banner