Fotbolti.net
12.10.26 - 09:10
Innkastið
Steypustöðin

Sterkastur í 25. umferð - Hneigðu þig drengur

Gils Gíslason (FH)

Sterkastur í 25. umferð - Hneigðu þig drengur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Hneigðu þig drengur, hneigðu þig," sagði Henry Birgir Gunnarsson í lýsingu á Sýn Sport þegar Gils Gíslason skoraði þrennu í 5-3 útisigri FH gegn Val á Hlíðarenda. Auk þess átti hann stoðsendingu í leiknum.

Þessi 19 ára leikmaður hefur sýnt glæsileg tilþrif á tímabilinu og er ein af lykilástæðunum fyrir bættri frammistöðu FH.

„Ég ætlaði mér að klára færin og það var fínt að ná þrennu," sagði Gils við Fótbolta.net eftir leikinn. Gils fagnaði mörkunum á hófstilltan hátt. Hafliði Breiðfjörð var með myndavélina á lofti og tók skemmtilegar myndir af Adolfi Daða Birgissyni að reyna fá Gils til að brosa eftir að hafa skorað.
Myndir: Adolf hjálpaði Gils að brosa
TENGT EFNI

Myndir: Adolf hjálpaði Gils að brosa

Lestu um leikinn: Valur 3 - 5 FH
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var að sjálfsögðu hæstánægður með Gils og sagði eftir leikinn:

„Hann var algjörlega frábær í dag. Það hefur verið stígandi í hans leik og hann bætt sig helling í öllu sem hann gerir fyrir liðið. Hann kemur sér alltaf í þessar stöður nálægt markinu, bæði með hlaupum aftur fyrir vörnina og með því að fara einn á einn. Hann sýndi í dag að hann getur verið gjörsamlega frábær," sagði Jói Kalli.

Gils varð fimmtándi leikmaðurinn í sögu FH til að skora þrennu í efstu deild þegar Hafnarfjarðarliðið tryggði sér áframhaldandi sæti í deildinni. Hann er Sterkasti leikmaður umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar.



Sterkustu leikmenn:
24. umferð - Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur)
23. umferð - Sigurður Breki Kárason (KR)
22. umferð - Viktor Jónsson (ÍA)
21. umferð - Oliver Ekroth (Víkingur)
20. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
19. umferð - Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur)
18. umferð - Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
17. umferð - Jökull Andrésson (FH)
16. umferð - Arnór Ingvi Traustason (KR)
15. umferð - Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
14. umferð - Aron Sigurðarson (KR)
13. umferð - Aron Elís Þrándarson (Víkingur)
12. umferð - Helgi Guðjónsson (Víkingur)
11. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
10. umferð - Freyr Sigurðsson (Fram)
9. umferð - Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
8. umferð - Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
7. umferð - Lúkas Logi Heimisson (Valur)
6. umferð - Óskar Borgþórsson (Víkingur)
5. umferð - Stefán Árni Geirsson (KR)
4. umferð - Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
3. umferð - Elías Már Ómarsson (Víkingur)
2. umferð - Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
1. umferð - Emil Atlason (Stjarnan)
Sterkastur í 25. umferð - Hneigðu þig drengur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sterkastur í 25. umferð - Hneigðu þig drengur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gils: Ekkert slæmt að „droppa“ Hólmari tvisvar

Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Stjarnan27-834
2Valur27-834
3FH27-730
4Þór27-3030
5KA27-929
6ÍBV27-1822
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.