Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vildi lítið tjá sig um Thiago Alcantara, miðjumann Bayern Munchen, í viðtali við Sky Sports í dag.
Liverpool er að kaupa Thiago á tuttugu milljónir punda en fimm milljónir punda gætu bæst við í bónusgreiðslum.
Thiago mun skrifa undir fjögurra ára samning við Liverpool.
Liverpool er að kaupa Thiago á tuttugu milljónir punda en fimm milljónir punda gætu bæst við í bónusgreiðslum.
Thiago mun skrifa undir fjögurra ára samning við Liverpool.
„Ég vil ekki segja neitt," sagði Klopp í viðtali á Sky Sports í dag.
„Við erum ekki hluti af sögusögnum. Við reynum að vera það ekki. Þegar við getum tilkynnt eitthvað þá hringi ég fyrst í þig."
Athugasemdir