Fotbolti.net
17.09.26 - 23:18
Brynjar Ingi Erluson

Ánægður með sigurinn en sér eitt sem þarf að laga - „Lentum í smá basli“

Pierre Sage, stjóri Palace

Pierre Sage, stjóri Palace

Canon

Mynd: EPA

Franski stjórinn Pierre Sage var nokkuð sáttur með frammistöðu sinna manna eftir 4-0 sigur Crystal Palace á Lech Poznan í Evrópudeildinni í kvöld.
„Þurfti að taka það eftir að hafa klúðrað tveimur í röð“
TENGT EFNI

„Þurfti að taka það eftir að hafa klúðrað tveimur í röð“

Sigur Palace var aldrei í hættu. Liðið kom sér í þægilega þriggja marka forystu í fyrri hálfleik og gerði síðan endanlega út um leikinn með marki Eddie Nketiah undir lokin.

„Ég er mjög ánægður með þetta því við skoruðum fjögur ólík mörk með fjórum mismunandi markaskorurum.“

„Við héldum líka hreinu og það er mikilvægt fyrir okkur eftir að hafa unnið sérstaklega í þeim þáttum eftir leikinn gegn Ipswich,“
sagði Sage.

Hann nefndi þó einnig atriði sem liðið þarf að bæta, meðal annars að flýta sér ekki um of þegar það vinnur boltann til baka.

„Það komu tveir kaflar, einn í hvorum hálfleik, þar sem við lentum í smá basli. Við þurfum að sýna meiri stöðugleika, sérstaklega með boltann. Í tvígang unnum við hann aftur en gáfum hann frá okkur of fljótt. Mér fannst eins og við værum of ákafir í að koma honum hratt fram á völlinn þegar við hefðum þurft að halda betur í stjórnina,“ sagði Sage.

Sigurinn var sögulegur fyrir Sambandsdeildarmeistarana, sem voru að spila sinn fyrsta leik í deildarkeppni Evrópudeildarinnar og fögnuðu um leið sínum fyrsta sigri þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.