Fotbolti.net
17.09.26 - 21:29
Brynjar Ingi Erluson

„Þurfti að taka það eftir að hafa klúðrað tveimur í röð“

Strand Larsen skorar úr vítaspyrnunni

Strand Larsen skorar úr vítaspyrnunni

Canon

Mynd: EPA

Norski framherjinn Jörgen Strand Larsen fór fullur sjálfstrausts á vítapunktinn og skoraði í 4-0 sigri liðsins á Lech Poznan í Evrópudeildinni í kvöld.
Evrópudeildin: Orra brást bogalistin í tapi gegn Bournemouth - B-deildarlið vann í Noregi
TENGT EFNI

Evrópudeildin: Orra brást bogalistin í tapi gegn Bournemouth - B-deildarlið vann í Noregi

Larsen hafði klúðrað síðustu tveimur vítaspyrnum sínum, fyrst með Wolves gegn Brentford í desember á síðasta ári og síðan með norska landsliðinu gegn Frökkum á HM í sumar.

Hann vildi því ólmur fara á punktinn gegn Poznan í kvöld þegar Palace var komið í 2-0 og Norðmaðurinn lét ekki segja sér það tvisvar. Hann skoraði örugglega og sagði mikla byrði hafa farið af öxlum sér.

„Þegar þú klúðrar tveimur vítaspyrnum í röð þá verður þú að hamra boltanum í netið. Það var áhættusamt því boltinn fór hærra en ég bjóst við en ég naut þess.“

„Yeremy er bróðir minn og kannski átti hann skilið að taka vítið, en ég þurfti á því að halda eftir að hafa klúðrað tveimur. Við viljum allir bara sýna okkur fyrir framan stuðningsmennina.“

„Þegar þetta virkar þá virkar það vel. Við hefðum getað unnið leikinn með stærri mun, en vorum einnig farnir að hugsa um leikinn á sunnudag,“
sagði Larsen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.