Fotbolti.net
17.09.26 - 21:52
Brynjar Ingi Erluson

Í skýjunum eftir sigurinn sögulega - „Þurftum að þjást“

Marco Rose

Marco Rose

Canon

Mynd: EPA

Marco Rose, stjóri Bournemouth, sagði liðið hafa þurft að þjást mikið í síðari hálfleiknum í 2-1 sigri á Real Sociedad í Evrópudeildinni í San Sebastian í kvöld.
Evrópudeildin: Orra brást bogalistin í tapi gegn Bournemouth - B-deildarlið vann í Noregi
TENGT EFNI

Evrópudeildin: Orra brást bogalistin í tapi gegn Bournemouth - B-deildarlið vann í Noregi

Bournemouth var að spila sinn fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins og var með öll völd í fyrri hálfleiknum.

Justin Kluivert og Rayan skoruðu góð mörk og Evanilson var nálægt því að bæta því þriðja við þegar skalli hans hafnaði í stönginni.

„Þetta var spennuþrungið og erfitt. Fyrri hálfleikurinn var frábær í öllu sem við gerðum, sérstaklega hvernig við unnum boltann hátt uppi á vellinum. Við þurftum hins vegar að þjást aðeins í seinni hálfleiknum því það vantaði skarpleika hjá okkur. Það er eitthvað sem við þurfum að ræða,“ sagði Rose.

Sociedad kom mun ákveðnara til leiks eftir hlé og minnkaði muninn með marki Sergio Gomez. Orri Steinn Óskarsson fékk síðan tvö dauðafæri til að jafna undir lokin en Djordje Petrovic sá við honum í bæði skiptin.

„Þetta er fótboltinn sem Bournemouth spilar. Við viljum vera virkir og verjast fram á við. Við viljum skapa færi og fengum tækifæri til að komast í 3-0, en leikurinn er 90 mínútur og fyrri hálfleikurinn var sérstaklega góður.“

„Þetta snýst ekki um leikina því við höfum ekki spilað svo marga enn. Við erum rétt að byrja tímabilið, en þetta snýst um hugarfarið. Það vantaði aðeins upp á ákefðina og ef hún dettur niður í okkar leikstíl þá finnum við strax fyrir því. Ef einhver verður þreyttur þarf að gera skiptingu.“


Rose gat því fagnað sögulegum sigri, þeim fyrsta hjá Bournemouth í Evrópukeppni.

„Þetta er stórkostlegur sigur í fyrsta Evrópuleik félagsins og frábært fyrir félagið og þessa tvö þúsund stuðningsmenn Bournemouth sem mættu hingað,“ sagði Rose.
Í skýjunum eftir sigurinn sögulega - „Þurftum að þjást“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.