Fotbolti.net
17.09.26 - 23:15
Snæbjört Pálsdóttir

„Örugglega heimsmet“ – Fimm markmenn og 17 leikmenn farnir síðan í júlí

Auglýsing
Gylfi Tryggvason hefur þurft að halda utan um gríðarlega leikmannaveltu hjá Grindavík/Njarðvík í sumar.

Gylfi Tryggvason hefur þurft að halda utan um gríðarlega leikmannaveltu hjá Grindavík/Njarðvík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Grindavík/Njarðvík tapaði 4-1 gegn Breiðabliki í kvöld en liðið hélt fast í sinn leikstíl allan leikinn og reyndi áfram að spila sig út úr pressu Blika þrátt fyrir að lenda snemma undir.

Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, sagði eftir leik að tilfinningin hefði verið nokkuð sérstök.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 - 1 Grindavík/Njarðvík

„Fyrstu tilfinningarnar eru svona eins og að hafa verið í vatnsrennibrautagarði og farið í stóra rennibraut. Þetta var bara mikið gaman og mikið erfitt, mikið af vel gerðu, mikið illa gert. Við gerðum fullt af mistökum og erum að læra af mörgum af þeim. Mér fannst þetta mjög skemmtilegur leikur af hliðarlínunni allavega sem þjálfari.“

„Þetta er mjög skýrt hvernig fótbolta við viljum spila. Leikmenn eru allir að reyna þannig að jú, þeim mistekst, en ég náttúrulega tek ábyrgð á því ef þeim mistekst út af því að ég er að láta þær spila svona. En þær eru að reyna þannig að ég er mjög ánægður með að þær reyndu í dag.“

„Það gekk ekkert frábærlega. Við áttum nokkra stórkostlega spilkafla þar sem við náðum að spila í gegnum pressuna og galopna þær og búa til þrír á móti þremur stöðu á rúmlega hálfum velli, sem er náttúrulega bara frábær staða til þess að ná að búa til í fótboltaleik. Svo hvernig við fórum með þær stöður er síðan annað mál.“


Grindavík/Njarðvík var 3-0 undir í hálfleik en Gylfi sagði að það hefði ekki verið erfitt að fá liðið til að halda sig við leikplanið.

„Þessi hópur er annað hvort bara orðinn svona gjörsamlega heilaþveginn af mér og okkar pælingum, okkar þjálfaranna, eða þá að þær eru bara á sömu blaðsíðu, sem ég reikna með að sé.“

„Ég upplifi að þeim finnist þetta svo gaman. Ég upplifi adrenalínið með þeim inni á vellinum þegar markmaðurinn okkar er undir pressu og við erum með fjóra leikmenn inni í vítateig að reyna að leysa þetta í einhverjum reitabolta og það eru allir stressaðir og það er svona spenna. Þetta eru spennufíklar í þessu liði.“


Bak við þessa nálgun er þó lið sem hefur gengið í gegnum gríðarlegar breytingar á tímabilinu.

„Það er búið að vera svo mikið af breytingum hjá okkur. Við erum búin að spila á yfir 35 leikmönnum í sumar sem er náttúrulega ótrúlega mikið. Við erum búin að vera með sjö markmenn hjá okkur í sumar, sem er líka bara örugglega heimsmet.“

„Ég held að við séum búin að missa alfarið frá okkur 17 leikmenn síðan í júlí. Ekki síðan í nóvember eða desember, heldur síðan í júlí held ég að við séum búin að missa frá okkur 17 leikmenn.“

„Þar af leiðandi höfum við þurft að fá inn einhverja, ég veit ekki hvað við erum búin að fá inn marga, tíu, fimmtán leikmenn, eitthvað svoleiðis.“

„Það er mjög erfitt þegar við viljum spila svona og við höfum verið að spila svipaðan fótbolta í tvö ár. Þetta var bara aðeins ýktara. En þetta er svona tegund af fótbolta sem við viljum spila.“

„Kannski fjórir, fimm leikmenn hafa verið að drilla þetta síðan bara í febrúar eða nóvember eða einhvern tímann. Svo koma nýir leikmenn inn og þær þurfa náttúrulega tíma til þess að aðlagast því sem við viljum gera.“

„Chemistry-ið er svolítið steikt akkúrat núna, myndi ég segja. En ég er ótrúlega ánægður með leikmennina, hversu móttækilegar þær eru fyrir þessu, að við reynum að spila svona fótbolta.“


Þrátt fyrir sveiflurnar vill Gylfi ekki fórna þeirri hugmyndafræði sem liðið hefur byggt á.

„Það getur vel verið að við höldum áfram að tapa með þremur, fjórum mörkum og bara sökka í einhvern tíma í viðbót. En ég trúi því að við getum orðið betri og munum verða betri.“


Sjáðu viðtalið við Gylfa í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.