Fotbolti.net
17.09.26 - 23:49
Brynjar Ingi Erluson

Sögulegur áfangi hjá reynsluboltanum

Adam Smith

Adam Smith

Canon

Mynd: EPA

Enski bakvörðurinn Adam Smith náði mjög áhugaverðum áfanga í Evrópudeildinni í kvöld.
Í skýjunum eftir sigurinn sögulega - „Þurftum að þjást“
TENGT EFNI

Í skýjunum eftir sigurinn sögulega - „Þurftum að þjást“

Smith, 35 ára og 141 dags gamall, skrifaði nafn sitt í sögubækurnar þegar hann byrjaði í 2-1 sigri Bournemouth á Real Sociedad í kvöld.

Hann varð þar með elsti enski útileikmaðurinn til að spila á þessu stigi í Evrópukeppni síðan Reginald Pickett lék með Ipswich gegn Milan í nóvember 1962. Pickett var þá 35 ára og 317 daga gamall.

Smith hóf ferilinn hjá Tottenham en náði aðeins tveimur leikjum með aðalliðinu áður en hann flakkaði um á láni í neðri deildirnar. Tímabilið 2013-2014 kom hann síðan til Bournemouth á láni og félagið keypti hann í kjölfarið.

Þar fann hann sitt heimili. Smith fór upp með Bournemouth í úrvalsdeildina og hefur verið mikilvægur hluti af uppgangi félagsins undanfarin ár.

Nú, rúmum áratug eftir komuna til Bournemouth, hefur hann einnig náð sögulegum áfanga með félaginu í Evrópu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.