Fotbolti.net
17.09.26 - 23:09
Brynjar Ingi Erluson

Vonar að dauðafærin tvö reynist Orra ekki dýrkeypt - „Þá skoraði hann að vild“

Orri Steinn í leiknum gegn Bournemouth

Orri Steinn í leiknum gegn Bournemouth

Canon

Mynd: EPA

Spænski blaðamaðurinn Benat Barreto hjá Diario Vasco segist vona að Orri Steinn Óskarsson nái sér fljótt á strik á ný eftir 2-1 tapið gegn Bournemouth í Evrópudeildinni í kvöld.
Evrópudeildin: Orra brást bogalistin í tapi gegn Bournemouth - B-deildarlið vann í Noregi
TENGT EFNI

Evrópudeildin: Orra brást bogalistin í tapi gegn Bournemouth - B-deildarlið vann í Noregi

Fyrri hálfleikurinn hjá Orra fór að mestu í að hjálpa liðinu að verjast öflugu liði Bournemouth, en Sociedad kom mun djarfara til leiks eftir hlé og verðskuldaði að minnsta kosti stig þegar upp var staðið.

Orri Steinn hefur skorað eitt mark í La Liga á tímabilinu og raðaði inn mörkum seinni hluta síðustu leiktíðar, en það hefur aðeins vantað upp á hjá honum til þessa í haust.

Hann fékk tvö dauðafæri undir lok leiksins í kvöld en Djordje Petrovic sá við honum í bæði skiptin. Barreto segist vona að færaklúðrið muni ekki kosta Orra mínútur.

„Frá febrúar fram í maí skoraði hann að vild, en núna hefur hann klúðrað þremur færum gegn Real Betis og tveimur í kvöld.“

„Vonandi munu þessi færi ekki kosta hann. Hann virtist algerlega týndur í leiknum og mistókst að nýta tvö dauðafæri eftir sendingar frá Zakharyan og Jon Martin sem hefðu átt að fara í netið,“
sagði Barreto.

Orri og Hector Fort, sem kom frá Barcelona í sumar, fengu aðeins einn af fimm mögulegum í einkunn og þjálfarinn Pellegrino Matarazzo fékk sömu einkunn.

„Þessi tilraunastarfsemi kom í bakið á honum. Sociedad var skelfilegt í fyrri hálfleiknum. Þeir reyndu að verjast með þrjá aftast, kannski af því að þeim fannst Bournemouth vera að fara illa með Fort, en það hafði öfug áhrif. Rose (stjóri Bournemouth) fór illa með þá. Þegar Sociedad fór aftur í sitt eðlilega horf batnaði leikurinn og liðið hefði átt að ná í stig,“ sagði hann að lokum.

Sociedad mætir Valencia um helgina og þar fær Orri gott tækifæri til að koma sér aftur á skrið. Að þeim leik loknum tekur við landsleikjagluggi.
Þjálfarinn Matarazzo fær ekki góða einkunn

Þjálfarinn Matarazzo fær ekki góða einkunn

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.