17.10.13 - 20:33
Alexander Freyr Tamimi
Guðrún Jóna tekin við Þrótti (Staðfest)

Guðrún Jóna er tekin við Þrótti.

Mynd: Þróttur

Guðrún Jóna er tekin við Þrótti.

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur ráðið Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur sem þjálfara meistaraflokks kvenna. Hún tekur við starfinu af Vöndu Sigurgeirsdóttur, sem tók við liðinu fyrir síðustu leiktíð en féll með það aftur í 1. deild.
Yfirlýsing frá Þrótti:
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Þrótti.
Guðrún Jóna býr að mikilli reynslu sem leikmaður og er farsæll þjálfari. Hún á að baki 336 leiki með KR á árunum 1985-2003. Varð hún á þeim tíma sex sinnum Íslandsmeistari sem leikmaður og tvisvar bikarmeistari. Er Guðrún Jóna er leikjahæsti KR-ingurinn frá upphafi
Hún var valin efnilegasti leikmaður úrvalsdeildarinnar árið 1988 og besti leikmaður úrvalsdeildarinnar árið 1997. Guðrún Jóna er þriðji leikjahæsti leikmaður í úrvalsdeild kvenna frá upphafi, með 215 leiki. Hún hefur spilað 25 A landsleiki og fjóra U20 ára landsleiki fyrir Íslands hönd.
Guðrún Jóna hóf þjálfaraferil sinn hjá KR. Á árunum 1992 til 2003 kom hún að þjálfun allra yngri flokka kvenna auk 5. og 6.fl karla.
Hún var aðstoðarþjálfari í meistaraflokki KR 2007 og 2008 og varð liðið bikarmeistari bæði árin.
Hún þjálfaði sameinað lið Aftureldingar/Fjölnis í meistaraflokki kvenna árið 2009 og hún þjálfaði KR 2010.
Guðrún Jóna kemur til Þróttar frá FH þar sem hún var frá 2010. Hjá FH þjálfaði hún 2. flokk og meistaraflokk. Undir hennar stjórn varð 2. flokkur bikarmeistari 2011 og Íslandsmeistari 2012. Hún tók við meistaraflokki FH sumarið 2012 og stýrði liðinu í Pepsideildinni í sumar.