Fotbolti.net
17.10.13 - 12:07
Elvar Geir Magnússon

Sam Hewson í FH (Staðfest)

Hewson er fæddur 1988.

Hewson er fæddur 1988.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH-ingar hafa fengið til sín enska miðjumanninn Sam Hewson frá Fram og hefur hann skrifað undir tveggja ára samning.

Hewson er þriðji leikmaðurinn sem Fram missir frá sér á nokkrum dögum en Kristinn Ingi Halldórsson gekk í raðir Vals og Almarr Ormarsson samdi við KR í gær.
Fréttatilkynning:
Sam Hewson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild FH til næstu tveggja ára. Hewson hefur leikið með Fram undanfarin ár, eða frá miðju sumri 2011.

Hewson hefur spilað stórt hlutverk í Fram-liðinu, en hann er miðjumaður. Hann spilaði á sínum yngri árum meðal annars fyrir unglingalið Manchester United.

Knattspyrnudeild FH er ánægð með þessa bætingu í hópinn og væntir mikils af Hewson. Frekari fréttir af leikmannamálum eru væntanlegar á næstunni.

Heimild: fhingar.net

Sam Hewson í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.