Fotbolti.net
17.10.19 - 15:13
Magnús Már Einarsson

Matip klár í slaginn gegn Manchester United

Matip fagnar marki.

Matip fagnar marki.

Canon

Mynd: Getty Images

Joel Matip, varnarmaður Liverpool, segist vera heill heilsu og klár í slaginn gegn Manchester United um helgina.

Matip missti af síðustu tveimur leikjum Liverpool fyrir landsleikjahlé vegna meiðsla.

Hann er hins vegar byrjaður að æfa og er klár í slaginn í leikinn gegn erkifjendunum.
„Ég er byrjaður að æfa aftur og vonandi næ ég að haldast heill. Ég er að æfa og mér líður vel. Ég verð klár ef það þarf á mér að halda," sagði Matip.

„Leikmenn verða fyrir meiðslum. Núna er ég kominn aftur og ég vonast eftir að vera heill áfram og einbeita mér að því jákvæða."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.