Arsenal heimsækir Manchester City á Etihad leikvanginn eftir og hefst leikurinn eftir tæplega klukkutíma.
Á hliðarlínunni mætir lærlingurinn Mikel Arteta lærimeistara sínum Pep Guardiola. Arteta stýrir Arsena og Guardiola liði City.
Sergio Aguero leiðir framlínu heimamanna í dag í sínum fyrsta leik eftir meiðsli. Hjá Arsenal eru þeir Alexandre Lacazette, Thomas Partey og Rúnar Alex Rúnarsson á bekknum. Partey var keyptur frá Aletico Madrid undir lok félagaskiptagluggans. Nicolas Pepe byrjar í framlínunni.
Þeir Aymeric Laporte og Benjamin Mendy eru fjarri góðu gamni hjá City. Guardiola segir Laporte kláran í næsta leik en Mendy verður lengur frá.

Byrjunarlið Manchester City: Ederson, Walker, Dias, Ake, Cancelo, Rodrigo, Mahrez, Bernardo, Foden, Sterling, Aguero
(Varamenn: Steffen, Stones, Gundogan, Torres, Fernandinho, Delap, Garcia.)
Byrjunarlið Arsenal: Leno, Bellerin, Holding, Gabriel, Tierney, Saka, Xhaka, Ceballos, Willian, Aubameyang, Pepe.
(Varamenn: Rúnar Alex, Luiz, Maitland-Niles, Elneny, Partey, Nketiah, Lacazette.)
Athugasemdir