Fotbolti.net
17.10.26 - 15:00
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: Glæsimörk í öruggum sigri Vals á KA

Valsmenn leiða baráttuna um Forsetabikarinn

Valsmenn leiða baráttuna um Forsetabikarinn

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Valur 4 - 1 KA
1-0 Myles A Veldman ('23 )
1-1 Adam Ægir Pálsson ('30 )
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('50 )
3-1 Dagur Orri Garðarsson ('59 )
4-1 Dagur Orri Garðarsson ('94 )
Lestu um leikinn
Valsmenn eru komnir með aðra hönd á Forsetabikarinn eftir sannfærandi 4-1 sigur á KA í neðri hluta Bestu deildar karla á Hlíðarenda í dag.

Það var meira undir hjá KA, sem er í harðri fallbaráttu, og byrjuðu gestirnir af krafti og sköpuðu sér nokkur góð færi á fyrstu mínútunum. Þeir fengu hins vegar kalda vatnsgusu í andlitið þegar Myles Veldman kom Val yfir með stórkostlegu marki.

Veldman átti þá hálfgerða fyrirgjöf sem sveif alla leið í fjærhornið. Glæsilegt mark, þótt hann hafi líklega ekki ætlað sér að skora, en gleðin entist aðeins í sjö mínútur því þá jafnaði Adam Ægir Pálsson gegn sínum gömlu félögum. Hann keyrði inn vinstra megin og skoraði með laglegu skoti í nærhornið.

Adam fagnaði ekki markinu með hefðbundnum hætti en gat þó ekki stillt sig um að setja fingurinn upp að vörunum og sussa á áhorfendur.

Staðan var 1-1 í hálfleik, en snemma í þeim síðari komust Valsmenn aftur yfir með öðru stórbrotnu marki. Hornspyrna var hreinsuð út á Tryggva Hrafn Haraldsson, sem hélt boltanum á lofti áður en hann stýrði honum glæsilega í vinstra hornið.

Aðeins níu mínútum síðar bætti Dagur Orri Garðarsson við þriðja marki Vals eftir laglegt samspil við Tryggva Hrafn. Þeir léku boltanum sín á milli áður en Dagur Orri vippaði honum snyrtilega yfir Steinþór Má Auðunsson í marki KA.

Valsmenn voru mun líklegri til að bæta við eftir þetta og fengu nokkur góð færi. Markus Lund Nakkim átti meðal annars skot í slána og Lúkas Logi Heimisson lét Steinþór hafa fyrir hlutunum með góðri tilraun sem markvörðurinn varði.

André Römer fékk svo dauðafæri undir lokin til að hleypa spennu í leikinn á ný, en skot hans fór fram hjá markinu.

KA-menn lögðu allt í sölurnar í leit að marki undir lokin og sendu nánast alla sína menn fram. Það nýtti Dagur Orri sér í uppbótartíma þegar hann fékk boltann, slapp einn í gegn og skoraði af öryggi.

Lokastaðan 4-1 fyrir Val, sem er á toppi neðri hlutans með 34 stig, þremur stigum á undan Stjörnunni þegar aðeins ein umferð er eftir í baráttunni um Forsetabikarinn.

Staðan er hins vegar öllu verri hjá KA, sem er á leið niður í fallsæti miðað við úrslitin eins og þau standa núna, en Þór er 2-1 yfir gegn Stjörnunni í hálfleik.
Tryggvi Hrafn skoraði stórbrotið mark

Tryggvi Hrafn skoraði stórbrotið mark

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Besta karla - Neðri hluti

#LiðLmunStig
1Valur26-234
2Stjarnan25-1231
3FH26-630
4KA26-1326
5Þór25-3324
6ÍBV26-1422
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.