Byrjunarlið Vals og KA: Valur með fjórar breytingar - Óbreytt lið hjá KA


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Vals og KA sem er gríðarlega mikilvægur leikur í fallbaráttunni, þar sem KA er enn í mikilli fallhættu, hefst á eftir klukkan 13:00. Byrjunarliðin hafa verið birt en þaum má sjá hér fyrir neðan.
Chris Brazell þjálfari Vals gerir fjórar breytingar á sínu liði sem tapaði 5-3 fyrir FH í síðustu umferð. Það er breyting á markverði þar sem Stefán Þór Ágústsson kemur í markið á meðan Frederik Schram sest á bekkinn. Þá koma einnig inn Jakob Franz Pálsson, Myles Veldman og Shkelzen Veseli. Hörður Ingi Gunnarsson sest á bekkinn, en Jónatan Ingi Jónsson og Ingimar Torbjörnsson Stöle eru ekki í hóp.
Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson þjálfarar KA halda liðinu alveg óbreyttu frá 3-0 sigri liðsin gegn Stjörnunni í síðustu umferð.
Byrjunarlið Valur
- 25. Stefán Þór Ágústsson (m)
- 4. Markus Lund Nakkim
- 5. Kristófer Dagur Arnarsson
- 7. Samúel Kári Friðjónsson
- 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
- 15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
- 17. Lúkas Logi Heimisson
- 19. Dagur Orri Garðarsson
- 21. Jakob Franz Pálsson
- 24. Myles A Veldman
- 29. Shkelzen Veseli
Byrjunarlið KA
- 13. Steinþór Már Auðunsson (m)
- 2. Birgir Baldvinsson
- 6. André Rømer
- 7. Adam Ægir Pálsson
- 8. Jeppe Pedersen
- 10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
- 21. Mikael Breki Þórðarson
- 23. Markús Máni Pétursson
- 28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
- 29. Jakob Snær Árnason
- 30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
