Fotbolti.net
17.10.26 - 16:10
Haraldur Örn Haraldsson

Chriz Brazell: Mér fannst við hungraðra liðið á vellinum

Auglýsing
Chriz Brazell: Mér fannst við hungraðra liðið á vellinum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var mjög ánægður með frammistöðuna," sagði Chris Brazell þjálfari Vals eftir 4-1 sigur gegn KA í dag.

Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 KA

„Við vorum vonsviknir eftir síðustu viku, og í dag vildi ég að strákarnir myndu spila fyrir sig. Við þurftum að bera meiri virðingu fyrir sjálfum okkar meira en við gerðum í síðustu viku, allavega í fyrri hálfleik. Í dag fannst mér við vera með frammistöðu sem passar meira við hvernig við höfum verið á tímabilinu. Við höfum kannski ekki alltaf tekið réttar ákvarðanir, þetta hefur verið skrítið tímabil hjá okkur, en karakterinn í liðinu hefur alltaf verið góður. Í síðustu viku ullum við sjálfum okkar vonbrigðum, en í dag sýndum við bestu útgáfuna af sjálfum okkur," sagði Chris.

Valur kom inn í leikinn með töluvert minna að spila fyrir en KA menn sem eru að berjast fyrir áframhaldandi veru í Bestu deildinni. Valur náði á köflum að nýta sér þá ró sem þeir höfðu.

„Við vorum líka undir pressu, þegar þú spilar fyrir Val þá er alltaf pressa á þér. Kannski miðað við tímabilið sem við höfum haft er aðeins minna, því menn eru farnir að bíða eftir næsta tímabili. Sérstaklega stuðningsmenn og stjórnarmenn, en við inn í klefa vorum svo vonsviknir eftir frammistöðuna okkar í síðustu viku. Þannig ég ætla ekki að segja að þeir hafi verið undir meiri pressu, við settum gríðarlega pressu á okkur sjálfa í þessum leik. Mér fannst það sjást, í því hversu hungraðir við vorum. Þannig hrós á liðið, mér fannst hungraðara liðið á vellinum vera við, sem segir margt," sagði Chris.

Það er enn óljóst hvað Chris gerir á næsta tímabili, og hann segist sjálfur ekki vera kominn með neina niðurstöðu.

„Fyrir nokkrum mánuðum kom ég hingað og vann með yngri flokkana á síðasta ári, og smá með Tufa. Vann með Hemma á þessu tímabili, og þegar það gekk ekki var frekar augljóst hver niðurstaðan yrði þar. Ég varð eftir að sjá um liðið út tímabilið, og það eru oft ástæður bakvið það, yfirleitt fjárhagslegar. Ef þeir gætu sparkað öllum út á sama tíma, þá held ég að þeir myndu gera það. Ég er aðallega bara einbeittur á að enda tímabilið vel, ég er mjög vonsvikinn hvernig tímabilið hefur farið, sérstaklega fyrri partur tímabilsins. Ég hef reynt að sjá til þess að við klárum þetta tímabil með klassa og auðmýkt, og sigla skipinu heim. Varðandi mína framtíð, ég hef engar áhyggjur af því. Núna er bara mikilvægt að fara í loka leikinn, við erum að spila fyrir Val sem er risa klúbbur og við þurfum að sjá til þess að við klárum þetta eins og í dag. Ekki endurtaka það sem við gerðum í síðustu viku," sagði Chris.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.