17.10.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gæti valið Argentínu framyfir Ítalíu og Þýskaland

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hinn 22 ára gamli Nicoló Tresoldi var hetjan er Club Brugge mætti á San Siro í miðri viku og skóp afar óvæntan 4-2 sigur gegn Ítalíumeisturum Inter.

TENGT EFNI
Sagði nei við Klopp og Mancini - „Sýnir að ég er á réttri leið“
Tresoldi setti þrennu í leiknum og þykir gríðarlega spennandi framherji. Hann ólst upp á Ítalíu en flutti til Þýskalands 13 ára gamall og er því gjaldgengur fyrir bæði landslið, en hingað til hefur hann skorað 16 mörk í 27 leikjum fyrir U21 landslið Þjóðverja.
Hann hafnaði bæði ítalska og þýska landsliðinu í síðasta landsleikjahléi þar sem hann ætlar að taka sér meiri tíma til að velja rétta þjóð til þess að spila fyrir í framtíðinni.
„Ég er ítalskur, en líka þýskur... og móðir mín er argentínsk! Ég mun ákveða mig þegar rétti tíminn rennur upp," segir Tresoldi, sem getur valið á milli þriggja risastórra fótboltaþjóða.