Fotbolti.net
17.10.26 - 16:52
Brynjar Ingi Erluson

Iraola gagnrýnir sína menn eftir sigurinn

Andoni Iraola

Andoni Iraola

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, var ekki alveg nógu sáttur eftir 2-1 sigur liðsins á Brentford í dag.
England: Tvö rauð í endurkomusigri Liverpool - Haaland með tvennu
TENGT EFNI

England: Tvö rauð í endurkomusigri Liverpool - Haaland með tvennu

Liverpool lenti 1-0 undir undir lok fyrri hálfleiksins, en skömmu síðar fékk Yehor Yarmolyuk rautt spjald fyrir að skalla Jeremy Jacquet í andlitið.

Liverpool nýtti sér liðsmuninn og sneri leiknum sér í hag með tveimur mörkum í síðari hálfleik, en Iraola var ekki ánægður með hvernig hans menn fóru að verja forystuna eftir að hafa komist í 2-1.

„Það gekk ýmislegt á í þessum leik. Fyrri hálfleikurinn var frekar jafn og við fengum dauðafæri, en þeir skoruðu undir lokin og því þurftum við að snúa leiknum við í þeim síðari. Mér fannst við spila mjög vel þar til við komumst í 2-1, en eftir það fórum við að verja forystuna og mér fannst við ekki takast nógu vel á við síðustu mínúturnar.“

„Við fengum dauðafæri til að gera út um leikinn en nýttum þau ekki. Það vantaði meiri ró og yfirvegun þegar við vorum með boltann og stundum snerist þetta bara um að halda boltanum í stað þess að sækja strax á markið.“


Vitaly Janelt fékk einnig rautt spjald hjá Brentford undir lok leiksins, en Iraola var spurður út í fyrra rauða spjaldið og vítaspyrnuna sem Liverpool fékk upphaflega en var síðan dæmd af.

„Þetta voru tvær ákvarðanir sem ég þarf að skoða betur, en mér fannst þetta líklega ekki vera vítaspyrna.“

Liverpool varð einnig fyrir áföllum vegna meiðsla. Dominik Szoboszlai þurfti að fara af velli eftir aðeins hálftíma leik og Jeremie Frimpong entist í örfáar mínútur eftir að hafa komið inn af bekknum í síðari hálfleik.

„Frimpong kláraði síðasta leik í Meistaradeildinni með krampa og því vissum við að hann gæti ekki byrjað. Þegar við vorum orðnir einum fleiri fannst okkur hann geta gefið okkur meira í sóknarleiknum, en hann fann strax fyrir verkjum í vöðvanum.“

„Dom hefur verið að reyna að æfa með okkur síðustu daga, en við vissum ekki hversu margar mínútur hann gæti spilað. Þetta eru ekki ný meiðsli, hann er einfaldlega ekki búinn að jafna sig að fullu,“
sagði Iraola.
Frimpong meiddist stuttu eftir að hafa komið inn á

Frimpong meiddist stuttu eftir að hafa komið inn á

Canon

Mynd: EPA

Szoboszlai byrjaði en fór meiddur af velli

Szoboszlai byrjaði en fór meiddur af velli

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.