17.10.26 - 16:16
Brynjar Ingi Erluson
England: Tvö rauð í endurkomusigri Liverpool - Haaland með tvennu

Alexander Isak var hetja Liverpool

Mynd: EPA

Yarmoliuk fékk rautt fyrir að skalla Jacquet

Mynd: EPA

Haaland skoraði tvennu

Mynd: EPA

Iwobi tryggði Fulham fyrsta sigurinn.

Mynd: EPA

Alexander Isak var hetja Liverpool

Mynd: EPA
Liverpool og Manchester City unnu góða sigra í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.
Liverpool vann góðan 2-1 endurkomusigur á Brentford á samfélagsvellinum í Lundúnum í dag, en heimamenn enduðu leikinn með aðeins níu menn inni á vellinum.
Gestirnir urðu fyrir áfalli eftir hálftíma leik þegar Dominik Szoboszlai þurfti að fara meiddur af velli.
Á 41. mínútu var dæmd vítaspyrna á Brentford eftir að Alexis Mac Allister féll í teignum, en dómarinn tók ákvörðunina til baka eftir skoðun VAR. Réttur dómur enda náði Dango Ouattara boltanum í tæklingunni.
Aðeins tveimur mínútum síðar kom Keane Lewis-Potter heimamönnum yfir með hörkuskalla eftir sendingu frá Igor Thiago. Alisson kom engum vörnum við og Brentford var komið í 1-0, en skömmu síðar tók leikurinn heldur betur óvænta stefnu.
Úkraínski miðjumaðurinn Yehor Yarmolyuk fékk beint rautt spjald eftir að hafa skallað Jeremy Jacquet í andlitið þegar Liverpool átti hornspyrnu. Algjörlega óþarfa hegðun hjá Yarmolyuk sem skildi sína menn eftir einum færri.
Í síðari hálfleik kom Jeremie Frimpong inn á fyrir Ronald Araujo, en hann entist aðeins í sex mínútur áður en hann þurfti sjálfur að fara meiddur af velli.
Liverpool sótti stíft að marki Brentford og þegar hálftími var eftir tókst gestunum loksins að jafna. Florian Wirtz fann Victor Munoz hægra megin og Spánverjinn keyrði í átt að vítateignum, tók laglega gabbhreyfingu og lagði boltann snyrtilega í vinstra hornið. Stórglæsilegt mark og staðan orðin 1-1.
Aðeins átta mínútum síðar var Liverpool komið yfir. Mac Allister átti frábæra fyrirgjöf á Bradley Barcola, sem skallaði boltann fyrir Alexander Isak. Svíinn kom honum fram hjá varnarmanni og afgreiddi boltann af öryggi niður í hægra hornið.
Það átti síðan eftir að versna enn frekar fyrir Brentford því í uppbótartíma fékk Vitaly Janelt sitt annað gula spjald og þar með rautt. Heimamenn voru því orðnir tveimur færri og Liverpool fékk kjörið tækifæri til að gera endanlega út um leikinn.
Barcola slapp þá einn í gegn en í stað þess að skjóta á markið stöðvaði hann inni í teignum og reyndi að finna Lewis Koumas. Færið rann út í sandinn eftir ansi furðulega ákvörðun Frakkans.
Það kom þó ekki að sök og Liverpool fagnaði mikilvægum 2-1 útisigri. Liðið fer upp fyrir Brentford í töflunni og situr nú í fimmta sæti með tólf stig, en Brentford er í því sjötta með tíu stig.
Haaland með tvennu í fimm marka leik
Manchester City er áfram með fullt hús stiga eftir magnaðan 3-2 sigur á Ipswich Town á Etihad í dag.
Phil Foden kom heimamönnum yfir á 19. mínútu eftir sendingu frá Jeremy Doku, en gleðin entist aðeins í tvær mínútur því þá jafnaði Daizen Maeda fyrir nýliðana.
Maeda fór þá illa með Marc Guehi, sýndi mikinn styrk í baráttunni, hristi varnarmanninn af sér og skoraði af öryggi í nærhornið.
Erling Braut Haaland var hins vegar ekki lengi að láta að sér kveða og kom City aftur yfir á 34. mínútu. Norðmaðurinn var síðan aftur á ferðinni þegar tuttugu mínútur voru eftir og skoraði sitt annað mark í leiknum.
Haaland kom boltanum í netið í þriðja sinn á 85. mínútu eftir langa sókn City, en markið var dæmt af vegna rangstöðu og því varð ekkert úr þrennunni.
Ipswich neitaði þó að gefast upp og minnkaði muninn undir lokin þegar Zian Flemming skoraði úr vítaspyrnu. Nær komust gestirnir hins vegar ekki og City fagnaði 3-2 sigri eftir fjörugan leik.
Manchester City er áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, en Ipswich situr í tíunda sæti með níu stig.
Tíu leikmenn Fulham fögnuðu fyrsta sigrinum
Fulham vann loksins sinn fyrsta sigur á tímabilinu þegar liðið lagði Hull City að velli, 1-0, þrátt fyrir að hafa misst mann af velli undir lokin.
Alex Iwobi skoraði eina mark leiksins á 33. mínútu og reyndist það nóg til að tryggja heimamönnum öll þrjú stigin.
Það kom þó smá spenna í leikinn í uppbótartíma síðari hálfleiks þegar Ryan Sessegnon fékk beint rautt spjald fyrir að stíga á kálfann á Robinio Vaz.
Fulham náði að halda út og fagna kærkomnum sigri sem lyftir liðinu upp úr fallsæti og í fimmtánda sæti með fimm stig. Hull er hins vegar í níunda sæti með níu stig.
Brentford 1 - 2 Liverpool
1-0 Keane Lewis-Potter ('44 )
1-1 Victor Munoz ('62 )
1-2 Alexander Isak ('70 )
Rautt spjald: ,Yehor Yarmoliuk, Brentford ('45)Vitaly Janelt, Brentford ('90)
Fulham 1 - 0 Hull City
1-0 Alex Iwobi ('33 )
Rautt spjald: Ryan Sessegnon, Fulham ('90)
Manchester City 3 - 2 Ipswich Town
1-0 Phil Foden ('19 )
1-1 Daizen Maeda ('21 )
2-1 Erling Haaland ('34 )
3-1 Erling Haaland ('69 )
3-2 Zian Flemming ('90 , víti)

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 7 | +12 | 21 |
| 2 | Arsenal | 6 | +5 | 15 |
| 3 | Brighton | 6 | +13 | 13 |
| 4 | Chelsea | 7 | +4 | 13 |
| 5 | Liverpool | 7 | +1 | 12 |
| 6 | Brentford | 7 | +5 | 10 |
| 7 | Everton | 7 | +1 | 10 |
| 8 | Leeds | 6 | +3 | 9 |
| 9 | Hull City | 7 | +1 | 9 |
| 10 | Ipswich Town | 7 | -4 | 9 |
| 11 | Newcastle | 6 | -3 | 8 |
| 12 | Crystal Palace | 6 | -3 | 7 |
| 13 | Man Utd | 6 | 0 | 6 |
| 14 | Coventry | 6 | -6 | 6 |
| 15 | Nott. Forest | 6 | -3 | 5 |
| 16 | Fulham | 7 | -3 | 5 |
| 17 | Aston Villa | 6 | -5 | 5 |
| 18 | Sunderland | 6 | -6 | 4 |
| 19 | Bournemouth | 6 | -6 | 3 |
| 20 | Tottenham | 6 | -6 | 3 |