17.10.26 - 21:16
Ívan Guðjón Baldursson
Jaissle: Vorum við stjórn langstærsta hluta leiksins

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Matthias Jaissle þjálfari Newcastle United svaraði spurningum eftir tap á heimavelli gegn Aston Villa í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

TENGT EFNI
England: Manzambi gerði eina markið í Newcastle
Johan Manzambi, ungur Svisslendingur sem hafnaði Newcastle til að velja Aston Villa í sumar, skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Jaissle var spurður út í Manzambi fyrir leik en neitaði að tjá sig um leikmanninn.
„Við erum mjög svekktir að tapa þessum leik. Við vorum talsvert sterkara liðið og stjórnuðum leiknum en fengum svo þetta mark á okkur. Við sköpuðum mikið af hættulegum stöðum en það vantaði gæðin á lokaþriðjungnum. Ég viðurkenni að við litum illa út eftir opnunarmarkið og þar til flautað var til leikhlés, en við vorum aftur talsvert sterkari aðilinn í síðari hálfleiknum," sagði Jaissle.
„Það gátu allir sem horfðu á leikinn séð að við vorum sterkara liðið og líklegri til að skora langstærsta hluta leiksins, en boltinn rataði bara ekki í netið. Við tókum slæmar ákvarðanir í sóknarleiknum og höfðum að lokum ekkert upp úr krafsinu. Heppnin var ekki með okkur og við verðum að bæta sóknarleikinn.
„Við erum með ungt lið og þurfum meiri tíma til að finna aukinn stöðugleika, það er eðlilegt. Ég get ekki álásað leikmönnum fyrir framlagið, okkur vantaði bara að skora mark í dag."
Newcastle og Aston Villa eru jöfn í neðri hluta deildarinnar með 8 stig eftir 7 fyrstu umferðirnar.