Fotbolti.net
17.10.26 - 10:10
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd stefnir á að styrkja hópinn í janúar

MIchael Carrick

MIchael Carrick

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, stjóri Manchester United, segist tilbúinn að láta til sín taka á félagaskiptamarkaðnum þegar glugginn opnar eftir tæpa tvo mánuði.
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
TENGT EFNI

Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd

Man Utd styrkti miðsvæðið í sumar með kaupum á Youri Tielemans, Carlos Baleba og Andrey Santos, en þeir reyndust einu leikmennirnir sem félagið keypti í glugganum.

Lisandro Martínez, leikmaður United, gagnrýndi Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá félaginu, harðlega fyrir að hafa ekki styrkt hópinn nægilega fyrir tímabilið og virðist andrúmsloftið innan félagsins vera afar slæmt eftir erfiða byrjun.

Gary Neville, fyrrum leikmaður United og sparkspekingur, tók í sama streng og sagði mikla þörf hafa verið á að styrkja varnarleikinn í sumar, sérstaklega stöðurnar í vinstri bakverði og miðri vörn. Það hafi hins vegar ekki verið gert og liðið sitji því eftir í erfiðri stöðu.

Carrick segir að félagið ætli sér að vera virkt á markaðnum þegar félagaskiptaglugginn opnar aftur í janúar.

„Þegar félagaskiptaglugginn opnar vill maður alltaf vera með áætlun og reyna að nýta hann eins vel og hægt er. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig staðan verður þegar þar að kemur, en það verða tækifæri til staðar.“

„Við munum því klárlega skoða þá möguleika sem bjóðast og reyna að koma sterkari út úr glugganum, hvernig sem það verður útfært,“
sagði Carrick.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.