17.10.26 - 15:40
Brynjar Ingi Erluson
Moyes furðar sig á því að tækling Rogers hafi ekki verið skoðuð betur

David Moyes

Mynd: EPA

Morgan Rogers var heppinn að fá ekki seinna gula

Mynd: EPA

David Moyes

Mynd: EPA
David Moyes, stjóri Everton, segir Chelsea hafa verðskuldað 2-0 sigurinn á sínum mönnum á Hill Dickinson-vellinum í dag.

TENGT EFNI
England: Áfall fyrir Chelsea þrátt fyrir góðan sigur
Moyes sagði sína menn ekki hafa skapað sér nægilega mikið af færum í leiknum og að þar hefði helsti munurinn á liðunum legið.
„Frammistaðan var ekki eins góð og við hefðum viljað. Við reyndum að halda okkur inni í leiknum en vorum óheppnir með mörkin sem við fengum á okkur. Það fyrra kom rétt eftir hálfleik og var mikið áfall, en það síðara fór af nokkrum leikmönnum áður en boltinn datt fyrir Neto.“
„Það voru kaflar í leiknum þar sem við gerðum ágætlega, en heilt yfir gerðum við ekki nóg og sköpuðum okkur ekki nægilega mörg færi.“
„Ég man ekki eftir mörgum góðum færum hjá okkur og það segir kannski mest um frammistöðuna. Thierno Barry fékk mjög gott færi í fyrri hálfleiknum, en ég man varla eftir neinu eftir það,“ sagði Moyes.
Tvær tæklingar vöktu mikla athygli í leiknum. Harrison Armstrong fékk gult spjald fyrir hörkutæklingu á Josh Acheampong, en síðar slapp Morgan Rogers við spjald þegar hann fór í ljóta tæklingu á James Garner, en hann var á gulu.
Moyes var ósáttur við ósamræmið í dómgæslunni og fannst Armstrong hafa verið refsað fyrir tæklingu sem hann taldi fullkomlega löglega.
„Harrison fór í hörkutæklingu þarna úti og mér fannst það líklega það besta við fyrri hálfleikinn. Fólk sem horfir á fótbolta kann að meta svona tæklingar. Þær eru stór hluti af leiknum hjá okkur og mér fannst þetta alls ekki vera aukaspyrna. Leikmaður þeirra stökk upp og leikurinn hélt áfram.
„En svo er hægt að velta fyrir sér tæklingunni hjá Morgan Rogers á James Garner. Við erum ekki að segja að það eigi að dæma aukaspyrnu á allt eða stöðva leikinn í hvert skipti, en mér fannst dómarinn ekki taka rétta ákvörðun þegar Harrison fékk gula spjaldið,“ sagði Moyes.