Fotbolti.net
17.10.26 - 10:30
Ívan Guðjón Baldursson

Real Madrid leiðir kappið um JJ Gabriel

Real Madrid leiðir kappið um JJ Gabriel
Canon

Mynd: Man Utd

Fótboltafréttamaðurinn vinsæli Fabrizio Romano segir að spænska risaveldið Real Madrid leiði kapphlaupið um enska táninginn JJ Gabriel sem hefur verið hjá Manchester United síðustu fjögur ár.
Mun velja á milli Barcelona og Real Madrid
TENGT EFNI

Mun velja á milli Barcelona og Real Madrid

Gabriel þykir efnilegasti leikmaður til að hafa komið upp úr akademíustarfi Man Utd í mörg ár og hefur ákveðið að framtíð sinni sé best hagað hjá öðru félagsliði.

Gabriel, sem hefur bætt ýmis unglingamet hjá Man Utd, er nýorðinn 16 ára gamall og neitaði að skrifa undir atvinnumannasamning við Rauðu djöflana.

Öll stærstu félagliðs Evrópu hafa mikinn áhuga á Gabriel og eru spænskir fjölmiðlar sannfærðir um að hann sé að velja á milli Real Madrid og FC Barcelona, en Romano segir Real Madrid vera í bílstjórasætinu.

FC Bayern og Paris Saint-Germain hafa einnig verið nefnd til sögunnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.