Reynir Sandgerði hefur gert eins árs samning við króatíska miðjumanninn Luka Jagacic.
Jagacic spilaði í fyrra með Njarðvík þar sem hann skoraði eitt mark í tuttugu leikjum í Inkasso-deildinni.
Jagacic spilaði í fyrra með Njarðvík þar sem hann skoraði eitt mark í tuttugu leikjum í Inkasso-deildinni.
Hinn 28 ára gamli Jagacic lék einnig í næstefstu deild með Selfyssingum frá 2013 til 2015.
Samtals hefur hann skorað tíu mörk í 79 deildar og bikarleikjum á Íslandi á ferlinum.
Þá lék hann 13 leiki með yngri landsliðum Króatíu á sínum t´ma og skoraði í þeim 4 mörk.
„Stjórn knattspyrnudeildar Reynis hlakkar til samstarfsins við Luka og býður hann hjartanlega velkominn í klúbbinn," segir á Facebook síðu Reynis.
Reynir Sandgerði vann 4. deildina síðastliðið sumar og endurheimti sæti sitt í 3. deild eftir fall árið áður.
Athugasemdir