Fotbolti.net
18.01.20 - 13:00
Ívan Guðjón Baldursson

Líkleg byrjunarlið Liverpool og Man Utd

Líkleg byrjunarlið Liverpool og Man Utd
Canon

Mynd: Guardian

Topplið Liverpool fær Manchester United í heimsókn í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Liðin mætast á morgun, sunnudag.
Leikurinn verður flautaður á klukkan 16:30 og sýndur beint á sportstöð Símans.

Heimamenn í Liverpool eru án Dejan Lovren, Nathaniel Clyne, Naby Keita og James Milner vegna meiðsla. Fabinho og Joel Matip eru tæpir.

Gestirnir frá Manchester eru án Axel Tuanzebe, Scott McTominay og Paul Pogba. Þá eru varnarmennirnir Eric Bailly, Timothy Fosu-Mensah, Marcos Rojo og Luke Shaw tæpir auk Marcus Rashford, sem gæti þurft að vera sprautaður með verkjalyfjum til að ná leiknum.

Liverpool hefur unnið alla deildarleiki sína á tímabilinu hingað til nema einn, 1-1 jafntefli við Man Utd á Old Trafford.

Liverpool trónir því á toppi deildarinnar, með 14 stiga forystu á Manchester City og leik til góða. Man Utd er í fimmta sæti, fimm stigum frá Meistaradeildarsæti.

Guardian stillir upp líklegum byrjunarliðum þessara liða og býst við að hinir tæpu Joel Matip og Fabinho verði í byrjunarliði Liverpool. Þá er spáð því að ungstirnið Mason Greenwood byrji á bekknum.

Jesse Lingard og Daniel James munu byrja ásamt Anthony Martial og Marcus Rashford í sóknarlínunni. Nemanja Matic byrjar þá við hlið Fred á miðjunni.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Newcastle9-212
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Everton9-111
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.