Íslenski sóknarmaðurinn Árni Vilhjálmsson skoraði og lagði upp í 4-1 sigri Krylia Sovetov Samara á Spartak Subotica er liðin mættust í æfingaleik í dag.
Árni, sem er 26 ára gamall, er á reynslu hjá Krylia en liðið leikur í B-deildinni í Rússlandi.
Hann byrjaði á bekknum hjá liðinu gegn Subotica í dag en spilaði allan síðari hálfleikinn.
Árni kom mikið við sögu en hann lagði upp annað mark liðsins með laglegri hælsendingu áður en hann gerði fjórða markið á 90. mínútu með laglegu skoti úr teignum.
Hann hefur verið án félags síðan í september en þá yfirgaf hann úkraínska félagið Kolos Kovalivka.
Athugasemdir