Marseille hefur náð samkomulagi við Napoli um verðið á sóknarmanninum Arek Milik.
Þetta kemur fram hjá Rai Sport þar sem sagt er að Milik sé á leið í læknisskoðun hjá franska félaginu.
Þessi 26 ára pólski sóknarmaður hefur þegar náð munnlegu samkomulagi við Marseille.
Þetta kemur fram hjá Rai Sport þar sem sagt er að Milik sé á leið í læknisskoðun hjá franska félaginu.
Þessi 26 ára pólski sóknarmaður hefur þegar náð munnlegu samkomulagi við Marseille.
Milik hefur ekki spilað einn einasta deildarleik á tímabilinu og verður samningslaus næsta sumar. Hann hefur skorað 38 deildarmörk í 93 leikjum fyrir Napoli á tæplega fimm árum.
Athugasemdir