Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. janúar 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ibe semur í Tyrklandi (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Jordon Ibe hafði verið samningslaus frá því síðasta sumar þegar hann náði samkomulagi við nýtt félag í gær.

Ibe skrifaði undir hjá tyrkneska félaginu Adanaspor sem spilar í næstefstu deild. Ibe skrifar undir þriggja og hálfs árs samning.

Ibe er kantmaður sem uppalinn er hjá Charlton og Wycombe en var árið 2012 keyptur til Liverpool. Bournemouth keypti hann á fimmtán milljónir punda tímabilið 2016 og árið 2020 samdi hann við Derby.

Samningi hans við Derby var rift síðasta sumar og talaði Ibe um að hann hefði glímt við þunglyndi, hlutirnir gengu ekki upp og hann spilaði einungis einn leik fyrir aðalliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner