Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 18. janúar 2022 14:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Köhler og Vall til ÍA (Staðfest)
Vall er 29 ára sænskur vinstri bakvörður.
Vall er 29 ára sænskur vinstri bakvörður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Uppfært 14:27: ÍA hefur tilkynnt að leikmennirnir, Christian Köhler og Johannes Vall, séu gengnir í raðir félagsins. Leikmennirnir skrifa undir tveggja ára samninga við félagið.

Köhler er 25 ára danskur miðjumaður sem leikið hefur í efstu deildum Danmerkur og í Svíþjóð.

Vall er 29 ára sænskur vinstri bakvörður sem leikið hefur í efstu deildum Svíþjóðar.

Þeir Köhler og Vall léku með Val síðasta sumar en fengu ekki áframhaldandi samning.

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var spurður út í tvíeykið í gær.

„Við erum að skoða hvernig við getum styrkt okkur, erum að vinna í því. Mér finnst þeir báðir hörkuleikmenn. Við erum bara að skoða okkar mál, hvernig við getum styrkt okkur," sagði Jói Kalli í gær.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner