Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. febrúar 2020 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Solskjær: Get rætt sjálfur við Raiola - Mun líklega ekki gera það
Mynd: Getty Images
„Ég þarf ekki að ræða um Mino Raiola við fjölmiðla," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, eftir leik United og Chelsea sem United sigraði 0-2.

„Ég get rætt við hann sjálfur." Fréttamaður Sky Sports ýtti á Solskjær og spurði hvort hann myndi gera það.

„Líklegast ekki," svaraði Solskjær og hló. Solskjær segir ekki þörf að tjá sig um þetta í fjölmiðlum. Svona sé óþarfi.

Raiola og Solskjær hafa skotið á hvorn annan. Fyrirsögnin á fyrsta svari Solskjær var eitthvað á þessa leið: „Pogba er ekki eign Raiola."

Þessu svaraði Raiola í gærkvöldi og sagðist vona að Solskjær teldi Pogba ekki eign sína og því fanga sinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner