Orri Hlöðversson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, verður nýr formaður ÍTF en þetta varð ljóst í kvöld.
Geir Þorsteinsson hafði boðið sig fram en hann ákvað síðan að hætta við framboðið. Haraldur Haraldsson ákvað að vera ekki áfram í hlutverki formanns og því verður Orri Hlöðversson nýr formaður samtakanna.
Kjósa átti formann á aðalfundi í dag en úrslitin lágu fyrir eftir að Geir hætti við framboðið.
ÍTF eru hagsmunasamtök þeirra félaga sem reka lið í efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu en sjá markmið samtakanna á myndinni hér fyrir neðan.
Football Geir dró bara framboðið sitt til ÍTF til baka.
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) February 18, 2021
Athugasemdir