Fotbolti.net
18.03.19 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lið vikunnar í enska - Man City á þrjá fulltrúa og Liverpool tvo

Síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar fyrir landsleikjahlé er nýlokið og er Garth Crooks hjá BBC búinn að velja lið umferðarinnar. Hann velur ekki aðeins leikmenn sem spiluðu í deildinni heldur líka í bikarnum þar sem Wolves sló Manchester United út í 8-liða úrslitum á meðan Manchester City komst naumlega áfram gegn Swansea.
Markvörður - Kristoffer Nordfeldt (Swansea): Valinn í lið vikunnar þrátt fyrir að fá þrjú mörk á sig í bikarnum. Svíinn átti stórleik og var ástæðan fyrir því að Swansea komst nálægt því að slá Man City úr leik.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaður - Wes Morgan (Leicester): Fyrirliðanum var skipt inn í upphafi leiks eftir að Harry Maguire fékk beint rautt spjald. Hann átti stórleik gegn Burnley og skoraði sigurmark leiksins.

Varnarmaður - Conor Coady (Wolves): Hélt Marcus Rashford í skefjum og var eins og klettur í hjarta varnarinnar er Úlfarnir unnu sér inn sæti í undanúrslitum enska bikarsins í fyrsta sinn á þessari öld.

Varnarmaður - James Milner (Liverpool): Kom af bekknum í síðari hálfleik og hafði mikil áhrif á leikinn gegn Fulham. Það er alltaf hægt að treysta á Milner og gerði hann sigurmarkið úr vítaspyrnu.

Miðjumaður - Raheem Sterling (Man City): Kom inn af bekknum er City var 2-0 undir gegn Swansea og bætti nýrri vídd við sóknarleik Englandsmeistaranna. Sterling er orðinn einn besti leikmaður enska boltans og sýndi það aftur á laugardaginn.

Miðjumaður - Bernardo Silva (Man City): Átti stórleik um helgina þar sem hann skoraði fyrsta mark City og lagði sigurmarkið síðan upp. Bernardo virðist verða betri með hverjum leiknum og er búinn að spila 40 leiki á tímabilinu.

Miðjumaður - James Maddison (Leicester): Gríðarlega mikilvægur í sóknarleiknum er 10 leikmenn Leicester höfðu betur gegn Burnley. Maddison skoraði laglegt aukaspyrnumark og skapaði þrjú marktækifæri.

Miðjumaður - Joshua King (Bournemouth): Skoraði bæði mörkin í 2-2 jafntefli gegn Newcastle. Norðmaðurinn hefur verið öflugur á tímabilinu og er kominn með ellefu mörk í úrvalsdeildinni.

Framherji - Sadio Mane (Liverpool): Það getur enginn stöðvað Mane um þessar mundir, hann skorar í nánast hverjum einasta leik. Hann skoraði fyrra markið gegn Fulham, átti skot í slá og fiskaði vítaspyrnu.

Framherji - Raul Jimenez (Wolves): Þvílíkt tímabil hjá þessum kappa en hann skoraði mikilvægt mark er Úlfarnir slógu Manchester United úr bikarnum á laugardaginn. Jimenez átti góðan leik og þá sérstaklega fyrir vinnuframlag sitt en hann djöflaðist í öftustu línu Rauðu djöflanna eins og enginn væri morgundagurinn.

Framherji - Sergio Agüero (Man City): Þvílíkur leikmaður. Kom inn af bekknum í stöðunni 2-0 og átti lykilþátt í að snúa stöðunni við í 3-2.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.